Fólkið á bakvið staðinn
With a shared admiration for the Icelandic sheep, Hulda Brynjólfsdóttir and Tyrfingur Sveinsson began Uppspuni Mini Mill in 2017, bringing together Hulda’s passion for wool, and Tyrfingur’s passion for machinery.
Tyrfingur er vélfræðingur og suðumeistari. Hann kennir járnsmíðar á unglingastigi grunnskóla. Fæddur og uppalinn á bænum sem Uppspuni er staðsettur á hvar hann lærði bæði að umgangast landið, dýrin og vélarnar sem almennt finnast til sveita.
Staðurinn
Lækjartún er miðlungsstór sveitabær á Suðurlandi í u.þ.b. 20 mínútna akstursfjarlægð austur af Selfossi (eða um klukkutími frá Reykjavík)
Á hverjum degi finnum við fyrir forréttindum okkar að fá að yrkja þetta land. Útsýnið er svo stórbrotið, fjallahringurinn tignarlegur (við getum séð til 7 eldfjalla á góðum degi) og Þjórsá, lengsta á landsins rennur framhjá landi okkar og er útsýni okkar út um stofugluggann. Dagleg störf okkar felast í að rækta þetta land af alúð og virðingu fyrir gæðum og töfrum þessa staðar og leggjum við okkur fram um að gera það eins og við teljum best.
Eins og landið annast um okkur, gerum við okkar besta til að læra og fræðast um bestu aðferðir sem í boði eru til að viðhalda gæðum þess sömuleiðis og bæta ef þess er kostur. Að forðast eiturefni er regla í okkar búskap og búum við þannig til matvöru sem er eins holl og hún mögulega getur orðið.
Kindurnar
Síðan við tókum við búinu, höfum við ræktað kindur með gæða ull og horft jafn mikið á liti og gæði ullar eins og kjötið. Við teljum mikilvægt að horfa á ræktun frá breiðu sjónarhorni og taka tillit til allra þátta ræktunarstarfsins. Já, og kindurnar okkar hafa allar nafn!
We believe the heart of the Icelandic sheep lives in the highlands, that is where they feel their best, and so we take our sheep to their highland range every summer. When you find the occasional small bit of grass in our yarn, it is the story of the sheep’s summer adventure. In the winter, we care for them in our barn, feeding them hay grown on our farm during the summer. We are the first farm in Iceland to adopt regenerative farming practices – an approach that strives to restore and build the health of the farm ecosystem, rather than simply extract from it. ‘We are what we eat’, and the same goes for sheep, meaning our sheep produce an incredibly high standard of wool because they graze on diverse, healthy pastures (that require no artificial fertilisers, pesticides, or herbicides).
Smáspunaverksmiðjan
Þó að Uppspuni sé fyrsta smáspunaverksmiðjan sem opnaði á Íslandi, þá byggjast vinnsluaðferðir okkar á mörghundruð ára hefðum við ullarvinnslu. Ekki bara á Íslandi, heldur um allan heiminn.
Við byrjuðum sumarið 2017. Okkur langaði að auka virði ullarinnar af kindunum okkar, en einnig vonaði ég í hjarta mínu að aðrir bændur myndu njóta góðs af því að við opnuðum smáspunaverksmiðju og að fleiri en ég myndu geta aukið virði og verðmæti ullarinnar.
Frá fyrsta degi hefur áhuginn verið mikill á því sem við erum að gera og garnið okkar er vinsælt í alls konar verkefni. Það er ekki bara að við fáum mikið af gestum til okkar, bæði Íslendingum og erlendum ferðamönnum, heldur höfum við spunnið garn úr ull frá fjölmörgum öðrum bændum og ullareigendum sem geta prjónað úr sinni eigin ull eða selt hana sjálfir heima á bæjum sínum.
Smáspunaverksmiðjan hefur því gefið mörgum íslenskum sauðfjárbændum tækifæri til að auka virði í sínum sauðfjárbúskap með því að selja þeirra eigin garn til almennings og það er okkur mikill heiður að geta aðstoðað bændasamfélagið á þennan hátt.
Ullin
Við framleiðum hágæða 100% íslenskt garn úr ullinni af okkar eigin kindum, þar sem við einbeitum okkur að góðum ullargæðum.
Af virðingu við kindina og þeirra fjölmörgu nýtingarmöguleika sem ullin hefur, höfum við ástríðu fyrir því að nýta allt . no-waste Við höfum þróað sjö ólíkar garntegundir sem lagar sig að eiginleikum ullar af ólíkum kindum. Því kindurnar eru ólíkar og hafa mismunandi ull milli einstaklinga. Ef einhver ull er ekki nothæf til garnvinnslu þá notum við hana í önnur verkefni. Til dæmis til að þæfa, sem tróð eða sem jarðvegsbætir í grænmetisgarðinn.