Karfa

Ullarvinnsla

Til að fá eigin ull unna í band er einfaldast að hafa samband á póstfangið: huldauppspuni@gmail.com eða hringja í síma 846-7199 og við gerum samning um hvernig þú vilt fá ullina þína unna.

Ekki má senda ull til okkar nema hafa samband fyrst.

Leiðbeiningar um meðhöndlun heima

Reyfi af einni kind er 1,2 til 3,0 kíló að þyngd. Úr einu kílói af ull má reikna með að fá 600 – 900 grömm af tilbúnu garni. 
Við viljum gjarnan fá 1 – 3 kíló af ull til vinnslu í sama lit. Eða eitt reyfi lágmark. Við rukkum lágmarksgjald fyrir vinnsluna, þannig að ef einungis eitt reyfi er unnið og það nær ekki kílói af garni, þá rukkum við samt fyrir 1 kíló.

Best er að kindin sé rúin að hausti sama dag og hún er tekin á hús. Gott er að velja þurrt veður til að taka á hús og rýja, svo ullin sé full af lofti og tandurhrein.

Setjið saman í poka þá ull sem má fara saman í garn. Kartöflupokar eru mjög heppilegir og taka eitt til tvö reyfi. Einnig má nota ruslapoka, en þá er gott að stinga göt á pokana til að fá loftun.

Líða þurfa að minnsta kosti 14 dagar frá því kindin var rúin og þar til ullin kemur til okkar, vegna sauðfjárveikivarna. Hún má ekki vera geymd í fjárhúsinu þann tíma. Gott er að geyma hana í bílskúr eða skemmu fjarri umgangi sauðfjár.
 Merkið pokana vel og setjið símanúmer og / eða netfang á miða ofan í pokann. Gott er að fá helstu óskir skrifaða á miðann. 
Þegar byrjað er að vinna ullina, höfum við samband við ullareigandann – annað hvort í tölvupósti eða símleiðis.

 

Eftir að ullin er komin í hús til okkar fer hún í röð þeirra sem hafa skilað inn ull til vinnslu. Búast má við einhverri bið og fer biðin eftir biðlista hverju sinni. Ef svart og hvítt kemur til okkar ásamt fleiri litum, verður biðin aðeins lengri, því við veljum að geyma þá liti fyrir nákvæma hreinsun á vélunum sem er gerð á tveggja vikna fresti.

Verðskrá fyrir ullarvinnslu

Mikil óhreinindi í ullinni tefja vinnuna og þá bætist við óhreinindagjald sem er 850 kr. á kíló.
Sé ullin mikið þófin eða mikil óhreinindi í henni áskiljum við okkur rétt til að hafna vinnslu hennar og endursenda á kostnað eiganda.

Hafið samband

Error: Contact form not found.