Einstakt íslensk ullargarn

Allt okkar garn er unnið úr 100% íslenskri ull og spunnið í smápsunaverksmiðjunni okkar.

Ullin sem við vinnum með kemur að mestu leyti af okkar eigin fé. Okkar ræktunaráherslur snúast ekki eingöngu um kjötið heldur einnig fjölbreytta liti og ólíka eiginleika íslensku ullarinnar. Þannig fáum við fjölbreytileikann til að vinna með og hafa garnið okkar eins einstakt og það er. Okkar ullarvinnsla byrjar þegar við ákveðum hvaða á við setjum undir hvaða hrút.

Garnið okkar er unnið í sauðalitunum og því er það eins og hver kind gefur hverju sinni. Við notum engin kemísk efni og náttúrulega litirnir eru allir ólitaðir eða meðhöndlaðir á annan hátt og því eru þeir eins fjölbreyttir og kindurnar okkar. Við notum milda umhverfisvæna sápu þegar við þvoum og meðhöndlum hvert reyfi af nærgætni og virðingu fyrir hráefninu og gerum garn sem hentar hverju reyfi. 

Við notum eingöngu gæða ull í garnið okkar og það getur komið af lömbum jafnt sem eldri einstaklingum. Það er ekki endilega aldur kindarinnar sem ákvarðar gæði ullarinnar. Veður, fóður og erfðaeiginleikar skipta líka máli. En hvernig við vinnum með hráefnið er mikilvægt. Þar sem við notum svo milda sápu við þvottinn, þá helst lanolínið (ullarfitan) í garninu og gerir það bæði skemmtilegra að prjóna úr því og heldur yl að þeim sem klæðist flíkinni auk þess að gera hana vatnsfráhrindandi eins og eiginleikar ullarinnar er frá náttúrunnar hendi.

Við litum reglulega lítið magn af garni. Það er eingöngu til að fá þá liti sem kindin hefur ekki, eins og grænan eða bláan. Að lita hvítt, grátt eða mórautt garn gefur breitt úrval af virkilega fallegum litum. Þeir eru aldrei eins, þannig að það er ekki öruggt að fá aftur sama lit einhverntíma seinna. En það má biðja um litun í sérverkefni.

Garnið okkar er EKKI superwash. (það er mengandi plasthúðun þar sem ullin er meðhöndluð svo hún þæfist ekki í þvotti) og hvergi á Íslandi er farið illa með fé til að nýta ullina af kindunum.

Okkar markmið er að vinna í hrynjandi með náttúrunni og fullnýta hvert einasta reyfi. Við trúum því ekki að til sé ónýt ull - það má nýta alla ull. Gæðamestu ullina notum við í garn og það versta (sem er þæft, sneplótt eða óhreint) notum við í moltu. Á þennan hátt sýnum við virðingu gagnvart sauðkindinni sem á hverju ári framleiðir dásamlega ull handa okkur og um leið nýtum við afganga til að næra landið sem nærir okkur öll - líka kindurnar.

Íslenska garnið okkar

Hulduband Heitir í höfuð Huldukonunnar. Það er tveggja þráða og 200 metrar eru 100 grömm. Heppileg prjónastærð er 4,0 - 5,0 en það má prjóna með minni og stærri prjónum ef vill. Prjónfestan á prjóna 4,5 er 18 lykkjur og 24 umferðir til að fá 10x10 cm. Huldubandið er okkar vinsælasta garn, þar sem hægt er að nota það í nánast öll verkefni. Hvort sem það er hefðbundin lopapeysa, fínni peysa, vettlingar, húfa, trefill eða sjal. Við mælum með flíkum úr Huldubandi til að ylja þér utandyra, á hestbaki, skíðum eða gönguferðum. Þar sem þær eru ekki mjög þykkar, passa þær vel undir úlpu eða regnjakka. Að hafa ull næst sér heldur á manni hita í öllum veðrum.

Dís (blómadísin) er tveggja þráða og kallast fingering á ensku. U.þ.b. 440 metrar eru í 100 grömmum af garni. Prjónastærðin er 1,5 -3,0 mm og prjónfestan á 3,0 er 24 lykkjur í 32 umferðir til að fá 10x10 sm. Til að prjóna sjöl notum við 4,0 eða 4,5 mm og þá fáum við léttar og loftmiklar flíkur. Dísin er alltaf úr lambsull, hrein og mjúk er hún klippt af lömbunum sex mánaða gömlum sama dag og þau eru tekin á hús, því það er allt of heitt fyrir þau að vera inni með ullina á sér. Að spinna jafn fínan þráð og Dísin hefur, krefst mikillar nákvæmni og athygli og því þarf að vanda valið þegar ullin fyrir Dísina er valin. Þegar á að prjóna sjöl, barnafatnað eða fínni flíkur eins og fínar peysur og munstraða vettlinga, þá mælum við með Dís.

Dvergaband er þriggja þráða og eru 100 metrar 100 grömm. Prjónastærðin er 5,0-6,5 mm. Prjónfestan er 13 lykkjur og 18 umferðir til að fá 10x10 sm. Við mælum með Dvergabandi í verkefni þar sem flíkin á að vera þykk, hlý og þola allskonar hnjask, því þetta er mjög sterkt garn. Það þarf skæri til að stytta endann. Bændur, sjómenn og aðrir sem stunda útivist og þurfa að halda á sér hita í öllum veðrum vilja helst peysur, húfur og vettlinga úr Dvergabandi. Ullin er svo mögnuð að hún heldur ekki bara á ykkur hita, heldur eruð þið líka þurr innan undir ullinni, þó að það rigni eða snjói.

Hjónaband er tveggja þráða og kallast DK. 280 metrar eru 100 grömm. Prjónastærðin er 2,5-3,5 mm. Við setjum stolt okkar í að finna réttu afurðina til að vinna úr ólíkum tegundum ullar. Við notum allt á einn eða annan hátt og að setja ullina í garn er alltaf okkar fyrsta markmið. Þegar ærnar eldast, verður ullin þynnri og togið er lausara í reyfinu. Með því að setja þessa ull tvisvar í gegnum hárskiljuna okkar, fáum við hráefni sem er nánast eingöngu þel (innri mjúka ullin). Við köllum garnið Hjónaband, af því að okkur finnst að hjónaband eigi einmitt að vera mjúkt, hlýtt og notalegt. Og það eru elstu kindurnar okkar sem gefa okkur þessa dásemd.

Dvergasokkar og Huldusokkar er þriggja þráða og er úr 100% ull. Ekkert plast í þessu sokkagarni til að gera það sterkara, eingöngu hin magnaða íslenska ull! Og virkar hún? Ójá! Slitsterkir, endingargóðir og með ullarfitunni halda þeir bæði hita á fótum þínum og mýkja viðkvæma hæla. Dvergasokkar eru þykkir og þola mikla notkun. Reynast frábærlega í útivinnu á köldum dögum, hvort sem er á skíðum, hestbaki eða í göngutúr. Á kvöldin er svo gott að smeygja sér í Huldusokkana sem eru örlítið þynnri og ylja þér á köldum gólfum, fyrir framan arininn eða jafnvel undir sæng á nóttunni. Dvergasokkarnir eru í sama grófleika og Dvergaband, 100 metrar eru 100 grömm og Huldubandið er heldur fínna, næstum eins og Huldubandið eða 210 metrar í 100 grömmum.

Tröllaband líkist helst dreddlokkum. Það er þráðspunnið, gróft og listrænt garn fyrir alls kyns listræn verkefni. prjónastærð fyrir þetta garn er frá 10,5 mm upp í 25 mm eða stærri. Það er oftast í náttúrulegum litum, en einstöku sinnum fæst það litað og við litum stundum upp í pantanir. Það hefur verið notað í margskonar verkefni. Það er ekki bara hægt að prjóna úr því eða hekla. Það má líka nota það í vefnað eða þæfingu. Hlutir sem notaðir eru daglega eða listaverk til að hengja upp á vegg. Hér fær ímyndunaraflið byr undir báða vængi til að skapa og nýta þetta geggjaða garn.