Wool Week 2026 Hat Kits
Ullarvikuuppskriftin 2026 er húfa sem er hönnuð af Helgu Thoroddsen fyrir garnið Dís frá Uppspuna.
Pakkningin inniheldur tvo eða þrjá liti og uppskriftinni má hlaða niður ókeypis á www.ullarvikan.is Húfan er prjónuð með tveimur eða fleiri litum; einum aðallit og einum eða fleiri munsturlitum. Hægt er að leika sér heilmikið með litina. Þegar pakkningin er keypt fylgir uppskriftin útprentuð með.
Hér má sjá nokkra möguleika til að prjóna húfuna. En það má líka senda tölvupóst og við finnum saman litina sem þig langar að nota í þína húfu.
27. september - 3. október 2026 verður sunnlenska ullarvikan haldin í fjórða sinn.
Ullarvikan er haldin annað hvert ár og við í Uppspuna erum stolt af að hafa tekið þátt frá upphafi við að skipuleggja og stýra hátíðinni ásamt fleiri áhugasömum aðilum sem vinna og nýta ull hér á Suðurlandi. Markmið Ullarvikunnar er einmitt að njóta íslensku ullarinnar og sameina framleiðendur og neytendur þessa hráefnis, læra af hvert öðru um eiginleika, gæði, framleiðslu og nýtingu ullarinnar á sem fjölbreyttastan máta, enda er íslenska ullin mögnuð.
€33
Additional information
| Litasamsetningar | Ljósgrátt og mislitað rautt, Grátt og tveir bláir, Beis og rauðbrúnn, Ljósgrár ot tveir bláir, Svart og hvítt, Mórautt og appelsínugult |
|---|






