Heimsókn
Komið og skoðið fallega garnið okkar (og aðrar ullarvörur) í notalegu litlu búðinni á loftinu, og ef þig langar að sjá hvernig garnið verður til þá er hægt að bóka kynningu.
Við erum í klukkutíma akstursfjarlægð frá Reykjavík og erum hluti af Ullarhringnum.
Uppspuni er skemmtilegur viðkomustaður, þar sem fólk getur séð hvernig ull breytist í garn.
Kíkt í búðina
Allt í búðinni okkar er gert úr 100% íslenskri ull, mest af okkar eigin kindum eða úr ull af kindum vina og nágranna. Við erum líka með yndislegt kasmírgarn af íslensku geitinni.
Í búðinni getur þú að sjálfsögðu keypt garnið okkar, þar á meðal sokkagarnið vinsæla sem er eingöngu úr ull (ekkert plast) og samt svo slitsterkt að það er nánast ótrúlegt. Mest af okkar garni er í sauðalitunum, en oftast nær er til handlitað garn sem við litum hér á staðnum.
Hjá okkur er hægt að kaupa handprjónaðar lopapeysur og húfur úr garni sem búið er til í Uppspuna. Við erum með prjónapakkningar, uppskriftabækur sem og stakar uppskriftir, lyppur og lokka í handspuna, kembur til að þæfa, geitastökur og lambsgærur, roðtölur, sápur sem við gerum úr fitunni af okkar dýrum, prjónamerki og fylgihluti fyrir prjónaskpa. Já, það er ótrúlega margt hægt að finna í búðinni okkar.
Lærið um vinnsluferlið
Þegar komið er inn á staðinn má sjá vinnslusalinn beint á móti dyrunum - þar eiga töfrarnir sér stað!
Alla virka daga erum við að vinna á vélarnar við að búa til garn.
Ykkur er velkomið að horfa úr anddyrinu, en ef þið viljið læra meira um vinnsluferlið og komast nær vélunum má bóka kynningu.
Látið fara vel um ykkur
Sumir elska ull meira en aðrir. En flestir eru með skilningsríkan félagsskap þegar þeir koma í búðina okkar.
Þeir sem "fylgja með" í heimsókninni í Uppspuna geta látið fara vel um sig í horninu okkar, kíkt í bækur sem við erum með þar eða notið sín í símanum. :-)
Það er opið mánudaga - föstudaga frá 9:30 til 15:00
Það er lokað á laugardögum og sunnudögum.
Breyttir opnunartímar eru auglýstir á Fésbókarsíðunni okkar.
Uppspuni er einungis í klukkustundar akstursfjarlæg frá Reykjavík og 20 mínútur frá Selfossi.
Setjið Uppspuni mini mill inn í google maps og þá komist þið heim á hlað.
Við erum staðsett á sveitabænum Lækjartúni 2, rétt austan við Þjórsárbrú, 2 km frá þjóðvegi 1.
Á leiðinni að Uppspuna og á hlaðinu má sjá öll helstu fjöll Suðurlands og er fjallahringurinn feikna fallegur á björtum dögum. Enda innblástur og orkugefandi í daglegum störfum.
Hægt er að hoppa inn í kynningar á mánudögum og þriðjudögum kl. 10:00 (en einnig má bóka kynningu á öðrum tímum)
Það er nauðsynlegt að bóka kynningu af því hópar geta fyllst. Hægt er að senda póst á hulda@uppspuni.is til að bóka kynningar. Við mælum með að bóka fyrirfram, því við tökum á móti fjölda hópa ferðamanna og nemenda og getum ekki alltaf græjað kynningu með stuttum fyrirvara.
Boðið er upp á tvo möguleika.
- 20 mín. túr um spunaverksmiðjuna - þar sem vélarnar eru skoðaðar og ferlarnir við að breyta ull í garn útskýrðir.
- 40 mínútna kynning og sýning á vélunum - fjallað er um kindina, ullina, garnið og söguna ásamt því að sýna vélarnar við vinnu og sér Hulda Brynjólfsdóttir, stofnandi Uppspuna um þær kynningar.
Verð eru breytileg eftir stærð hópa og er staðfest þegar pöntun á kynningu liggur fyrir.
Þú getur borgað fyrir kynningar og keyptar vörur í búðinni með íslenskum krónum og / eða öllum almennum kortum. Eins er hægt að millifæra ef fósk óskar þess.
Ferðamenn sem koma yfir hafið geta fengið TAX FREE kvittanir til að leysa út á flugvellinum.
Já, þér er velkomið að taka myndir í verksmiðjunni og búðinni. Vinsamlega takið ekki myndir af starfsfólki án þess að fá leyfi hjá þeim fyrst.
Okkur þætti vænt um að sjá myndirnar á samfélagsmiðlum, svo ef þeim er deilt þangað væri gaman að vera tengd (tögguð) á Instagram og Facebook