Sameinuðu Þjóðirnar hafa tilnefnt árið 2026 sem "Alþjóðlegt ár kvenbóndans."
Þar sem ég er sjálf kvenbóndi, þá verð ég að gera eitthvað til að heiðra þessa ákvörðun. Þannig að við ákváðum að halda hönnunarsamkeppni. Þar sem prjónarar geta hannað peysu fyrir kvenbændur heimsins, og að sjálfsögðu úr íslenskri ull. Hér má finna helstu upplýsingar um keppnina:
Markmiðið er að hanna íslenska lopapeysu til að heiðra konur sem eru bændur.
Konur eru hryggjarstykkið í sveitum landsins og hafa alltaf verið. Þær hafa staðið að bústörfum, heimilisstörfum, barnauppeldi, ræktun búpenings, grænmetis og blómagarða ásamt því að sinna félagsmálum fyrir landbúnað, kynningu á starfi bænda í sveitum og það er aðeins brot af því sem konur til sveita gera í sínu starfi.
Það er samt svo að í hugum margra hoppar karlmaður upp þegar minnst er á bændur. En bændur eru svo sannarlega bæði konur og menn. Enda tek ég undir orð föður míns sem alltaf sagði; "Konur eru líka menn."
Það er því löngu tímabært að kvenbændur fái þá athygli sem þeir eiga skilið og við í Uppspuna viljum leggja okkar að mörkum til að efla þann heiður.
Og því blásum við til leiks. Höldum hönnunarsamkeppni á lopapeysu fyrir kvenbóndann. Allir geta tekið þátt, en að sjálfsögðu þarf garnið að vera unnið úr íslenskri ull og helst á Íslandi.
Dómarateymið verður valið úr prjónurum sem eru ekki of tengdir Uppspuna (til að gæta hlutleysis)

Reglur
- Verkefnið er íslensk Lopapeysa.
- Peysan á að vera fyrir konur.
- Hún skal gerð úr íslenskri ull.
- Uppspunagarn væri frábært, en það er ekki skylda. Skylt er að ullin sé íslensk og garnið á helst að vera framleitt á Íslandi.
- Upplýsingar um hönnuðinn skal skilað með í lokuðu umslagi svo dómarar viti ekki hver á hvaða peysu og hlutleysis sé gætt.
- Peysunni og drögum að uppskrift skal skilað til Huldu í Uppspuna fyrir 1. júní 2026. (Uppskriftin þarf ekki að vera fullunnin).
Frekari upplýsingar má fá á netfanginu huldauppspuni@gmail.com huldauppspuni@gmail.com - Tvær peysur munu fá verðlaun.
- Besta peysan
- Frumlegasta peysan
- Peysurnar verða skoðaðar og dæmdar og úrslit tilkynnt 20. júní 2026

