Úrslit hönnunarsamkeppninnar

Laugardaginn 20. júní, verða úrslit í hönnunarsamkeppni um lopapeysu kvenbóndans kynnt. Þar sem plássið í Uppspuna er takmarkað fékk ég að setja upp sýningu á peysunum sem bárust í keppnina í bílskúr tengdamömmu handan við hlaðið á móti Uppspuna. Opið verður á laugardaginn frá 4:00 til 5:30 og á sunnudaginn 21. júní frá 13:00 - 16:00.

Ég hef fengið helling af peysum í keppnina og það verður erfitt að velja þá best. Ég er Guðslifandi fegin að ég er ekki dómari í þessari keppni.

Sjáumst á laugardaginn.